Við vorum engan
vegin að nenna að taka prófin í síðustu viku, það var svona 40%
áreynsla þar.....
Þriðjudeginum fór Fríða
Magga til slagelse að hitta hina Fríðuna, en þeir sem eftir voru í
skólanum, fóru í Adventure-race Jibbíí kóla fyrir því...... Racið
byrjaði klukkan 19:00, þá fórum við í svona stjörnuleik, gerðum
alls konar þrautir út um allan bæ... En við byrjuðum svo illa að
við náðum bara að gera 5 af 9 þrautum DEM IT... Þurftum svo að fara
í MANNA-bæ, hann er svona ca 10 km frá, en við tókum
því bara stille og rolige, hjólandi og
línuskautandi í kolniðamyrkri, jæja við vorum næstsíðastar þangað,
og einn sterkur liðsmaður og afar góður kortalesari slasaðist við
bröltið á línuskautunum Fengum við ekki annan
stjörnuleik, fengum núna að leita af póstum inn í skógi og takið
eftir það er enþá kolniðamyrkur og við inní skógi með sama og engin
vasaljós, ég og hófí notuðum símana okkar, svo vorum við með 2
hjólaljós... þetta var eins og að vera í
hryllingsmynd, en hetjurnar létu sig sko ekki hafa það og náðu 3
póstum af 4 jeijjj
En
einn sterkur liðsmaður og afar góður kortalesari
slasaðist við bröltið á línuskautunum, svo við urðum 3 eftir og það
þýðir aðeins eitt í svona adventure-race-keppnum að við vorum
diskvalifited, en þá sama hversu góðar eða snöggar við værum með
racið þá gætum við aldrei unnið glatað.....
En við erum bara
fuldstændig ligeglad og hjóluðum og skautuðum á næsta stað sem var
aðeins lengra í burtu en sá fyrsti, þar beið okkar mjög létt
þraut,svo við fengum okkur snickers fyrir því. Við áttum að labba í
gegnum skóg án þess að nást og þeir sem voru í felum máttu bara
taka 2 skref á eftir okkur. Þá voru skautarnir rifnir af okkur og
við áttum að hlaupa og hjóla. Næsti áfangastaður var Blokhus, ca
5km frá. Þar var spurningaleikur en við vorum svo lélegar að við
fengum langþrátt straff, heilar 10 mín, þá fengum við okkur sko
samlokur og mars.
Svo fengum við
rómantíska ferð á ströndinni, sólarupprásin blasti við okkur, en
auðvitað vorum við pungsveittar og ógeðslegar hlaupandi og hjólandi
til skiptis. Þegar við náðum síðasta staðnum, sem við áttum að gera
þrautir á, áttum við bara eftir að fara til baka í fallega bæinn
okkar en það voru einungis 27 km. Þá var klukkan rúmlega 06.00 um
morguninn, en við náðum uppí skóla um hálf 9 og þurftum þá að gera
enn einn stjörnuleikinn. Þeir slúttuðu þessu ekki svo fyrr en um
hálf 12, þá var matartími, svo fór ég að pakka og sofnaði
smá
Klukkan hálf 4 lögðum
við af stað til Köbenhavn, með bíl. En við komumst nú ekki lengra
en að århusum, en þar keyrðum við aftaná annan bíl, þurftum að
hanga á hraðbrautinni í 2 tíma takk fyrir, og
bíða eftir að dráttarbíll kæmi og næði í okkur, svo við enduðum á
að taka lestina. Vorum komnar í hús um hálf 2. Ferðin tók því
aðeins 10 tíma, en ekki 5 eins og maður er með
lestinni.
Fimmtudagurinn var
LETIdagur, Fríða Magga kom til okkar og við
kúrðum bara og átum og átum.
Föstudagurinn var dagur
verslunar og tívolís, verlsuðum samt ekki mikið og fórum í afar fá
tæki híhí en ég fékk samt candy floss

Laugardagurinn var
dagur baccardi Razz og jarðaberja, dagur drykkjuleikja og
LA-bars
Sunnudagurinn var dagur
þynnku og pizzugerðar,við elduðum dýrindis
pizzu

Nammi
gott

E-ð avokadó sull sem öllum á að langa
í

Fríða Magga fékk sýrðan
rjóma
Mánudagurinn var dagur
heimferðar, nú tókum við lestina og það urðu
engar tafir, þetta er dagurinn sem ég prófaði frisbee-golf.
Kennarinn minn í keramik, er sko danskur meistari í frisbee, og hún
er á leið á EM í frisbee í sumar í Berlín að mig mynnir. Mjög
skemmtilegur leikur, ég skal kenna ykkur öllum hann þegar ég kem í
sumar


Þessar voru aðeins of nánar




Þessar voru æðislegar 

Já ég veit ekki hvað gengur á hérna